logo
ISL ENG

Um okkur

Kaffi Duus ehf.
Duusgötu 10, 230 Keflavík.
Sími: 421 7080. Fax: 421 2081
Kt. 710108-1610
Netfang: duus@duus.is
www.duus.is
 
Eigandi/Framkvæmdarstjóri:
Sigurbjörn Sigurðsson sími 857 7065
 
 
Um Kaffi Duus
 
Kaffi Duus var opnað 26. nóvember 1998. Það byrjaði sem lítið kaffihús með sæti fyrir 30 manns, boðið var upp á grillmat og aðra smárétti. Húsið er staðsett við gömlu Duus húsin við smábátahöfnina í Keflavík, með frábæru útsýni yfir höfnina. Bergið og smábátahöfnin fyrir neðan, sjórinn og fjallasýn í fjarska er vel viðrar. Þegar dimmir þá er bergið sem liggur við höfnina upplýst á kvöldin.
Árið 2000 var bætt við 65 sæta hliðarsal með góðu gluggaútsýni yfir smábátahöfnina og bergið, salurinn hefur notið gríðalegra vinsælda meða viðskiptavina okkar.
Í janúar 2008 var svo tekin í notkun nýr salur sem rúmar 65 manns ásamt fundaraðstöðu á efri hæð með sæti fyrir 30 manns, svo alls getur staðurinn tekið á móti 180 manns í sæti.
Húsið býður uppá að vera með allt að þrjá mismunandi hópa í húsinu á sama tíma vegna skiptingu hússins.
Umhverfis húsið er stór og mikil verönd þar sem gestir geta snætt á góðviðrisdögum.
 
Kaffi Duus opnar kl. 11:00 alla daga vikunnar.
Hádegisverðarseðill er frá kl. 11:30 til 14:00 Þar bjóðum við upp á fiskrétti, grillrétti og erum við orðin vel þekkt fyrir okkar frábæru salöt og rjómuðu súpur sem fólk getur fengið í brauði eða í hefðbundinni skál.
Hefðbundin matseðill er á milli kl. 14:00 til 18:00 með hamborgurum, samlokum, pasta og barnaréttum. Kaffidrykkir, brauðmeti og tertur eru í boði allan daginn.
A La Carte matseðillinn er frá kl 18:00 til 22:00. Okkar sérfag eru fiskréttir og er það sem við seljum mest af.
 
Kaffi Duus rekur einnig sportveitingarstaðinn Bó-INN að Hafnargötu 36 í Keflavík.
 
Við bjóðum gamla sem nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna.
 

Kaffi Duus - Um Duus

Tilboð

Hádegistilboð:

Sérréttir: Kjöt- eða fiskréttur, súpa, og kaffi
Kr 1.400
Pizza með tveimur áleggstegundum
1.250 kr,-

Ostborgari og franskar og pepsi í gleri.
1.170 kr,-

Myndasöfn