Við tökum vel á móti hópum
Veislan þín skiptir okkur máli!
Við höfum þrjá mismunandi sali sem við getum boðið til afnota fyrir viðskiptavini okkar fyrir eftirfarandi:
Árshátíðir, Brúðkaup, Afmæli, Fermingar, Erfidrykkjur, Útskriftarveislur, Þorraveislur, Jólahlaðborð, Starfsmannaskemmtanir og Fundi.
Bjóðum fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum glæsilega aðstöðu til ýmissa mannfagnaðar. Láttu okkur um að skipuleggja veisluna.
Veisluþjónusta, fjölbreyttir og spennandi hópamatseðlar. Ertu kannski með einhverjar sérstakar óskir við uppfyllum þær með gleði í hjarta.
Allar fyrirspurnir og aðrar upplýsingar er hægt að nálgast hér.
Gluggasalurinn
Salurinn er notaður dagsdaglega undir hina hefðbundnu veitingarstarfsemi staðarins. Útgengt er á stóra verönd með gluggahandriði og hægt að njóta útsýnis þar á góðviðrisdögum.
Þessi salur er aðeins leigður út ef hinir salirnir eru í útleigu og starfsemi stöðvuð í millitíðinni á meðan útleigu stendur.
Þar er hægt að stilla upp veisluborðum/hlaðborðum fyrir hin ýmsu tilefni eða samnýta með hinum salnum ef vantar fleiri sæti, salurinn rúmar 20 manns í sæti.
Nýji salurinn
Efri hæðin
Hægt er að sjá niður í neðri sal af efri hæðinni. Bar aðstaða er til staðar og því hægt að fá sér barþjón ef tilefni þykir til.
Kaffi Duus - Hópar
Tilboð
Hádegistilboð:
Sérréttir: Kjöt- eða fiskréttur, súpa, og kaffi
Kr 1.400Pizza með tveimur áleggstegundum
1.250 kr,-
Ostborgari og franskar og pepsi í gleri.
1.170 kr,-



